Kallinn

Daginn!

25.11.2006 18:40:14 / gr3tar

Svona dót...

jájá, bara ef þið nennið...

1 .Nafn mitt og nafn þitt?
2.Hvar kynntumst við?
3.Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
4.Hveru vel þekkirðu mig?
5.Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
6.Hugsaru enn þannig um mig?
7.Aldur minn?
8.Augnlitur minn?
9..Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
10..Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
11.Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
12.Hver er minn besti eiginleiki?
13.Er ég feimin?
14..Einhverjir sérstakir hæfileikar sem ég hef?
15..Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það þá vera?
16.AF hverju valdirðu það gælunafn?
17.Hvað heldurðu að muni verða mitt framtíðarstarf?
18.Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
19.Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
20..Líkar þér vel við mig?
21.. Langar þig að knúsa mig?
22.. Höfum við knúsast?
23.. Lýstu mér í einu orði??
24. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
25. Hvenær sástu mig síðast?
26. ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 08:32:08 / gr3tar

Ógeðis Strasbourg!!!

Jæja, ég kom frá strasbourg í nótt, og var það eitthver sú viðbjóðslegasta ferð sem ég hef farið, lá veikur upp á herbergi hallan tímann, gat ekkert étið nema fyrsta og seinasta kvöldið og svo fór ég líka með í evróðuparlamentið sem er stolt strasbourgar, og þeir ganga meira aðsegja svo langt að kalla þetta höfuðborg evrópu útaf því, jafnvel þótt það sé bara notað 3eða4 daga í mánuði!!! :^)

Frakkar eru mjög leiðinleg þjóð og vilja ekki tala ensku þótt þeir geti það, babbla bara eitthvað á frönsku! Einusinni lenti ég meiraaðsegja í því að ég fór í apotek, og ætlaði að fá hóstasaft, kellingin vissi ekkert, svo hún náði í aðra til að þýða fyrir sig. það þótti mér mjög gaman, en NEI, helvítis kellingin þýddi fyrir hina sem bablaði bara á frönsku!!! Eins og þeir sem mig þekkja vita, þá get ég verið frekar pyrraður þannig að ég endai með því að öskara "talaðu ensku!!!!!!" ..og viti menn, þetta var minnsta mál! :whut:

Ég hef tekið þá ákvörðun að fara aldrei aftur til Strasbourg, þetta er dýr staður, fólkið þarna er snobbað og afhverju í ands... að vera með 8 kirkjur á svæði sem er svipað stórt og Stykkishólmur?????

Seinna... Pyrraður Siggi

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 17:35:42 / gr3tar

Danmörk

Jæja, þá er ég búinn að vera í Danmörkinni í rúma 2 mánuði og kann bara rosalega vel við mig hérna! Skóinn er frábær, og ég hef verið í kór, hljóðstúdíói, hljómsveitum, matreiðslu, jóka, dönsku, og mörgu fleyra. Eftir 2 vikur fer ég svo til Fraklands í skólaferð og hlakkar rosalega til þess!
SVO er það aðal spennan! þegar ég kem aftur hingað eftir jólin verður farið beint í flug aftur með 18. vinum mínum, og þá til Kenýa, þar sem til stendur að halda áfram til Tanzaníu í 3 vikur, og þar verður farið í landsbæ, þar sem við verðum að kenna ensku og fl. Jafnvel förum við í fjallgöngu á Kilimanjaro og jafnvel líka til Zanzibar! Þetta er allt saman rosalega spennandi og hlakkar mig svakalega til! :D Eftir Tanzaníuna fer ég aftur til Uldum og verð þar til mars og skrifa nú örugglega aftur fyrir þann tíma! :D

Nenni ekki að að skrifa meira í bili, þið getið talað við mig á MSN!!! :klikk:

COMMENTIÐ SVO!!!!! :evil:

Sig.Gretar



Brot af íslendingunum - Pétur, ég, Eyrún og Ólöf


Svo ein af okkur forsetanum, en hann, Addi og Drífus kíktu í mörkina um daginn!


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 16:22:46 / gr3tar

Daginn!

jæja, þá er kominn tími á pistil!
Ég varð tvítugur 21.júlí og hélt teiti sem heppnaðist bara hellvíti vel, fullt af fólki kom og vonandi skemmtu sér allir vel, svo var partý á laugardeginum sem var ágætt...

28.-30. var ég á borgarfirði á einum bestu tóleikum sem ég hef farið á, en það voru Belle And Sebastian og Emiliana Torrini sem héldu uppi fjörinu!

Seinustu helgi var ég að vinna...

18 dagar í Danmörku!!!!! :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 19:16:34 / gr3tar

Life goes on



» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 16:26:38 / gr3tar

núna má ég allt....

Ég er tvítugur í dag!
Vika í bræðsluna!!!!! :lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 20:15:47 / gr3tar

Home Sweet Hólm!

Jæja, þá er ég kominn heim af skeldunni sem var geðveik, hér eru dómar af helstu hljómsveitunum og svo nokkrir punktar. :D

Amplifier: Gott rokk sem var alveg að virka! Þurfti reyndar að fara fyrr heim...
Bob Dylan: Hefði alveg viljað sleppa við þessi ósköp!
Guns 'n Roses: Biðum í klukkutíma, en stóðu ekki alveg fyrir sínu...
Sigurrós: Frábærir tóleikar sem ég hafi meira gaman af en guns'n
Martha Wainwright: Var ein með gítarinn. virkaði vel og ég hafði gaman af...
Rufus Wainwright: Flottur artist og varð enn betri þegar martha var með honum.
Franz Ferdinand: Ágætis tónleikar, en fór frekar á Raconteurs
George Clinton: Faðir funksins sló í gegn! dýrslegur fjandi!
Gogol Bordello: Flott pönk með brassi og nikku!
Kaizers Orchestra: Hollensk hljómsveit, voru frábærir!
Kashmir: Nordik Rock eins og það gerist best
L.O.C.: Danskur rappar sem mér fannst asskoti góður
Lady Sovereign: Var þetta grín???? fokking ógeð!
Morrissey: Kom á óvart hvað hann var góður
Opeth: Nettir, hefði viljað stoppa lengur...
Placebo: Betri en ég bjóst við
The Raconteurs: Jack White getur bara ekki klikkað!
Scissor Sisters: Einir skemmtilgustu tóleikarnir! dansaði allan tímann!
Kanye West: Ágætur...
The Streets: Geggjaður, en alltof mikið af fólki... var korter úr tjaldinu.
The Strokes: Flottir eins og alltaf
Tool: Hafði ekkert hlustað á þá, en geri það núna
Roger Waters: SHIT!!!!! hann var geð-veikur!
Zdob Si Zdub: Spiluðu í eurovision í fyrra... voru snilldin ein!

Vantar samt eikkað held ég.....

Svo eftir góða hátíð var farið í köben. þar sem við fengum m.a. ekki að fara í tivoli, don't know why... :$ en sam's bar var alveg að virka í staðinn!

Þakka öllum sem eyddu þessum tíma með mér fyrir frábæra hátíð! :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 00:37:27 / gr3tar

Skeldan nálgast!

Bara láta vita að ég er að fara á hróaskeldu á morgun!!!!!!!!!! :lol:
Vottar fyrir spennu, og ef eikker er að fara þá verð ég í kampi á svæði E!


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 21:23:57 / gr3tar

Leti

Sælt veri fólkið, líka þeir sem höfðu enga trú á mér!!!! :)

Sit hér í tjilli uppá skrifstofu að halda auði félagskap, ekkert að gera! Gaman að segja frá því að það er farið að styttast í hróaskelduna, og hef ég undir höndum einn aukamiða sem er til sölu fyrir rétt fólk, endilega commenta ef þér langar :!:

Í gær var voða veisla um borð í baldri sem endaði með því að við fórum nokkur á ball á hellisandi og svo í mat til berghildar, snilldarkvöld alveg!

Annars er lítið að frétta af mér, reyndar búinn að fá inn í skóla í danmörku næsta vetur, og heitir hann Uldum. Hlakkar nett til! :)

Þið sem ekki náðuð miða á Belle and Sebastian í bræðslunni.... To Bad :klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 14:57:51 / gr3tar

slakur

sælt veri fólkið!

sit hér í  mestu makindum heima hjá Elvu, og er ekki frá því að ég sé bara nokkuð þunnur! það var vel tekið á því í gær, en ég skellti mér á ball með joe gæ band! fiskarnir voru stappaðir og maður rakst bara á fullt af fólki. jónína, ingvar og doddi skelltu sér úr sveitinni, og var mjög gaman að hitta á þau! annars er lítið að frétta og ég ætla bara að skrifa meira seinna! :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 18:26:07 / gr3tar

Veikur!

Jæja, söngvakeppnin búin og leikritið líka, og ég veikur!

Söngvakeppnin var á fimtudaginn og gekk bara betur en ég bjóst við! Við enduðum í öðru sæti og er ég bara hellvíti sáttur við það. ;) Þetta var mjög gaman og svo var ágætis ball með Úlrik eftir söngvakeppnina.
Á laugardaginn endurtókum við svo leikinn á Fimm Fiskum og gekk það bara ágætlega...
Svo á sunnudaginn var síðasta sýningin á brúðkaupinu og gekk hún ágætlega... ekkert alltofmikið af fólki, en það kom slatti frá Grundarfirði, sem var bara gott...
En í gær fór maður í skólann og var frekar slappur, og í dag er ég bara búinn að vera veikur heima.... :evil:

Fann myndir af söngvakeppninni og ballinu á síðunni hjá Elvu...





Þar til seinna, SigGretar...
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:41:32 / gr3tar

Trilltur trans?

jæja, þá er kallinn að fara að taka þátt í forkeppni söngvakeppni framhaldsskólanna, og ætla ég að skella mér í spor Tim Curry og syngja lagið, Sweet Transvestade (Trilltur Trans). lagið er náttlega algjör snilld, og hafa æfingarnar gengið vel.
Hljómsveitin er skipurð Mér (söngur ;) ), Bjarka (trommur), Gumma (bassa), Jóni (Gítar), Beggu (raddir), Auði (raddir). Sérstakur heiðursgestur að þessu sinni verður enginn annar en Tyrfingur sem ætlar að þenja trompetinn, en það verður náttlega snilld!
annars er lítið að frétta, kíkti í grundó á laugard, og var mökkaður...



» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 10:34:04 / gr3tar

Daginn!

Siggi mættur úr grundarfirðinum!
Síðasta vika hefur verið frekar slöpp... engar æfingar eða sýningar.
Frumsýndum, síðasta fimtud. sýningin gekk vel fyrir sig, en það sama má ekki segja um síðustu tvær æfingarnar... Lenti á sjúkrahúsi eftir báðar æfingarnar, eins og fyrr sagði, útaf auganu og svo á generalprufunni datt ég á sviðskantinn og fékk þetta líka myndarlega sár á fótinn! :evil: en ég kláraði nú æfingun og fór svo á sjúkrahúsið, þar sem gert var að sárinu. það var ekki hægt að sauma, þar sem það er á sköflungnum, þannig það var bara að hreynsa vel og setja plástur. ég er ennþá að drepast í þessu, og sárið er orðið svart!
Síðustu helgi fór ég í bæinn á föstud, og var vel í því, eins og maður segir víst. já, það hugsa örugglega margir "siggi að drekka?" 8|
á eftir fer ég væntanlega í skíðaferð til akureyrar og verður það örugglega, hellvíddi gaman. pósta kanski á mánud!

    SigGretar

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 13:02:42 / gr3tar

Frumsýning nálgast!

Jæja, þá fer að koma að frumsýningu!:D Æfingin í gær var frekar skrítin því bæði ég og Guðrún vorum grenjandi alla æfinguna og enduðum uppi á sjúkrahúsi með eitthvað drasl í auganu. Þurftum að stoppa æfiguna vegna þess að Guðrúnu var farið að svíða svo mikið og svo fór ég eftir æfinguna og það kom í ljós að ég var með eitthvað drasl undir augabrúninni og var kominn með sár þannig að ég get ekki verið með linsurnar fyrren í fyrsta lagi á frumsýningu.
En í kvöld er komið að generalprufu og byrjar hún klukkan hálf níu en við verðum að vera mætt klukkan sex í förðun og svonna... já, og ég er orðinn svrthærður! Ég, Siggi Már, Johnny, Bjarki og Kristján fórum allir í litun í gær og erum náttúrulega alveg fjall myndarlegir!

En jæja ætla að kíkja aðeins á þjóðhagsfræðina... :evil:

SigGretar



Já, og klukkdraslið!

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

    1. 10-11
    2. Fimm Fiskar
    3. Sæferðir
    4. Narfeyrarstofa

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. Bio-Dome
  2. Dumb Dumber
  3. Blues Brothers
  4. Líf-Myndirnar

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  1. Sundabakki 11
  2. Hjarðarhagi 27
  3. Vesturberg 74
  4. .....

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. That 70's Show
  2. Friends
  3. House
  4. Chapelle Show

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. Svíþjóð
  2. Danmörk
  3. Mallorca
  4. Portugal

Fjórar síður sem ég skoða daglega: (fyrir utan blogg)

  1. b2.is
  2. liverpool.is
  3. snaefellsport.is
  4. fsn.is

Fernt matarkyns sem ég held uppá:

  1. Bolongnese
  2. Skötuselur
  3. Humar
  4. Pizza

Fjórar bækur sem ég les oft: 

  1. les ekki  bækur nema ég þurfi þess!

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

  1. Hróaskeldu!
  2. Borgarfirðinum að tjilla
  3. Á tónleikum með Bright Eyes
  4. það væri magnað að vera á Everest!

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

    Nenni ekki að klukka... þetta er leiðinlegt!

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 00:27:25 / gr3tar

Case Of The Monday

Sælt veri fólkið! hef ákveðið að skrifa nokkrar línur.
Síðan seinast hefur það gerst að ég fór á árshátíð FSN þarseinustu helgi, og þar var mikið stuð. Byrjuðum á því að hittast heima hjá Johnny, strákarnir og tana okkur! það var hellvíti mikið stuð, og grín sem gekk vel upp. Síðan lá leiðin til grundó, og voru menn orðnir nokkuð kenndir þegar þangað var komið, til að mynda hann Rúnni félagi, sem var farinn að rífa sig! Maturinn var fínn og skemmtiatriðin líka, en Gunni Samloka var veislustjóri, og stóð hann sig bara vel. En besta atriðið var þegar nemendafélagið sýndi myndbandið sitt, sem var vægast sagt gróft, en eins og þeir sem mig þekkja vita, þá er ég mikið fyrir kaldhæðnishúmor, og það kemur nú oft fyrir að fólk skilji mig ekki þá fannst mér þetta frekar fyndið! Eftir matinn fórum við til Katrínar og drukkum aðeins fyrir ballið, sem var með Svörtum Fötum. þetta var bara fínasta ball og skemmti ég mér konunglega! :haha:
Á laugardagskvöldið var svo aftur farið í Grundó, en þar var smá teiti hjá Tryggers, sem... já, fór víst á ball eftir það og í partý......... :$

Síðan síðustu helgi var föstudagurinn rólegur, leikfélagshittingur, og svo Narfeyri.
Á laugardaginn drifum við Hafdís okkur upp á skaga í afmæli til Gumma Gé, en það var haldið á mörkinni, og þar voru allir sem máli skipta! þetta var geð-veikt afmæli, og vona ég að fleyri geri það sama og reyni að koma saman gamla vistarhópnum aftur!
En já, þá er nú ekkert mikið að ske í virkum... bara skóli og leikrit!
Þar til síðar.... Sig Gretar


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2